....árið 1981 var Samband íslenskra harmonikuunnenda stofnað.
Mörgum þykir það kannski ekkert spes en það merkilega við þennan
dag er að þremur árum seinna fæddist ég. Eða akkúrat fyrir 22 árum
síðan.
Reyndar var ég búinn til 9 mánuðum áður í Bandaríkjunum, einmitt
þar sem ég er staddur núna. En þótt maður sé "Made in USA" þá er
það ekki tekið gilt þegar maður sækir um bandarískan
ríkisborgararétt.
Talandi um merkilegar dagsetningar þá komum við
Flórída-Fálkarnir til Íslands þann 10 des, á sunnudagsmorgni sem er
núna í um þrjátíu og þriggja daga fjarlægð. Já við teljum niður. Þá
er ég búinn að vera hérna í níu mánuði án þess að kíkja heim.
Við drengirnir byrjuðum að tala um íslenskan mat og fleiri hluti
sem við söknum í skólanum í dag.
Það undarlega var að það sem við töldum upp voru hlutir sem við
kannski borðuðum eða gerðum ekki dags daglega, en virtumst ekki
getað lifað án þeirra.
T.d. soðin ýsa, ýsa í raspi, slátur, sviðasulta, alíslenska
lambakjötið, Húsavíkurhangikjötið, Bláa Lónið, Kentucky Fried
Chicken, Dominoz, hægra hornið á eftir hæðinni á Hverfisbarnum,
heitir pottar, ÍSLENSKA VATNIÐ sem ég by the way drakk nánast
aldrei en gæfi allt fyrir eitt glas akkúrat núna.
Síðan sögðum við allir í kór : ÍSLENSKA KÓKIÐ!!! eitthvað sem
við þráum út af lífinu. Ef ég ætti að lýsa kókinu hérna í nokkrum
orðum þá er það vatnsþynnt, og troðfyllt af klökum svo það hitni
alveg örugglega ekki næstu þrjú árin. Vegna klakanna þá er útkoman
svart klórvatn. Fyrir ykkur heima gætuði skilið þetta aðeins betur
með því að fara á bólakaf í Laugardalslauginni og taka stóran
sopa.
Dominoz pizzurnar hérna eru bara þykkt deig með gömlu áleggi, og
KFC, tja veit ekki alveg hvernig á að lýsa því, veit ekki alveg
sjálfur hvað það var sem við fengum, það var hart, djúpsteikt og
útatað í majonesi.
Jú það eru litlu hlutirnir sem við söknum hérna, Þannig að fyrir
ykkur á Klakanum, þótt það sé rok úr öllum áttum, og aldrei
meðvindur, þá er þetta ekki svo slæmt.
Núna um helgina fórum við í Halloween afmælisparty til
hennar Ernu. Það mættu allir í búningum og er ekkert lítið úrvalið
á búningum hérna í Bandaríkjunum, reyndar er þetta frekar stór
hátíð hérna.

Robin sást í góðum fíling í Winterpark en
tönnlaðist á því að hann stæði í skugga Batmans

Fuuk Mei og Suk Mei þrösuðu allt kvöldið
um hvort vændi ætti að vera frjáls markaður og
hvort að verðsamanburður væri góður fyrir samkeppnina. Þær
skiptust á að lækka verðið á sjálfum sér þar til Fuuk Mei (Darren
Bird) var komin niður í 99 cent, og var þá nánast orðin
verðlaus.

Gústi "Keilukúla" mætti sem Happy Gilmore og sést
hér fylgja sveiflunni vel eftir.

Batman og Robin í öllu sínu veldi. Tóku þetta
týpíska súperhírópóse fyrir myndavélina.

Capt. Jetson mætti sem paratrooper úr seinni
heimstyrjöldinni, 101st Airborne.

Arnar "Nightmare" mætti sem.... hann
sjálfur.

Batman sýnir hér stoltur vænghafið sitt.

Happy Gilmore kennir hér Arnari "Nightmare"
sveifluna. Gilmore sagði oft og ákaft að þetta "væri
allt í mjöðminni".

Hugh Hefner og Suk Mei í góðu glensi. Suk Mei benti
Hefner á að stelpurnar í Playboy hefðu ekki lengur þennan stíl og
sjarma sem Suk Mei hefði upp á að bjóða.

Jói mætti sem Capt. Jack Sparrow, og var undarlega
góður í hlutverkinu. Ekki síðri en Johny Depp.

Marilyn Monroe lét sig ekki vanta á svæðið og tók
fyrir okkur eina þekktustu pósuna sína "Fighting the airflow from
below".

Batman laumaði því að Catwoman að hann væri að leita
sér að nýjum "sidekick" því að Robin væri bara ekki alveg að
meikaða. Hún tók ágætlega í það.

Robin fékk abbókast vegna þess og hellti sér í
bolluna... hellti bollunni í sig átti þetta að vera.

Capt. Jetson and Marilyn Monroe in the old
days.
Fór á Borat í annað skiptið í kvöld og þetta er líklegast
fyndnasta mynd sem ég hef séð. Aldrei hlegið í gegnum heila mynd
áður.
Og hvað er málið. Í síðustu viku uppgötvaði ég lagið Boten Anna
með Basshunter, og í þessari viku heyrði ég lagið Barfly með
Jeff Who í fyrsta skipti. Svo er ég að heyra að þetta séu gamlir
hittarar á Klakanum. Bara old stuff.
Fær maður engar fréttir að heiman eða?? Maður er stanslaust
eftirá.
Annars er ekkert spes að frétta. Lífið er gott og við förum
fljótlega að koma heim.
Þakka fyrir mig,
Maverick out.